SM - Hausmynd

SM

...

 


| View Show | Create Your Own | Playlist

 

af plan59


meira af Anne Taintor

ískápaseglar.

 EP-8428

EP-8429 EP-8345  EP-8935

Nostalgia

Sinalco. Góður drykkur hérna í den.  Fæ ekki betur séð en að hann sé enn til í Þýskalandi. Sinalco.de

ruderwelt_flasche


gamlar auglýsingar III

20v1934 The prompt control of senile agitation.

THORAZINE

Thorazine can control the agitated, belingerent senale and help the patient to live a composed and useful life.  

 

Gaman af því hvernig hlutirnir voru oft orðaðir í den. 

 

 

 

 

 663d2324

 

Bólur á bakinu?? Konum finnst greinilega mjög sexy að kreista þær.


hvernig er þitt himnaríki á jörð?

Sætt myndband Leigh Nash My idea of heaven. Væri gaman að heyra um ykkar himnaríki.Smile

spark í rassinn II

Fréttablaðið, 10. feb. 2007 09:00

Krefst verndar fyrir stúlkurnar

Pétur Hauksson geðlæknir segir að stjórnvöld eigi að bregðast strax við og aðstoða það fólk sem hefur orðið illa úti eftir dvöl sína í Byrginu. Pétur setti þegar árið 2002 fram grunsemdir um brotalamir í starfsemi Byrgisins.

Bréf hans þess efnis dagaði uppi hjá Landlæknisembættinu, en var ekki sent áfram til þar til bærra stjórnvalda. Síðan hefur komið í ljós að ástand mála í Byrginu var miklum mun verra en nokkurn óraði fyrir, bæði hvað snerti fjármál og fleiri þætti starfsins.

„Þær stúlkur sem verst hafa orðið úti í dvöl sinni í Byrginu þurfa til dæmis vernd, því þær eru í hættu. Þarna er um varasama menn að ræða og þær eru skelfingu lostnar," segir Pétur. „Mín skoðun er sú að það eigi að gera eitthvað fyrir þetta fólk. Mér finnst ömurlegt að þessar stúlkur þurfi að standa í því persónulega að fá málinu framgengt með kærum til sýslumanns. Það er ekkert smámál að ganga í gegnum slíkt. Þær eru hetjur, en þær eru jafnframt veikburða og eiga erfitt með þetta.

Þær voru veikar fyrir og máttu ekki við því áfalli sem þær urðu fyrir. Og nú eru þær aftur að upplifa það sem áfall að það er ekkert komið til móts við þær. Mér finnst að kerfið sem brást eigi að koma inn í þetta mál með myndarlegri hjálp núna."

Spurður hvað hann vildi að gert yrði fyrir fólk sem kom illa út úr dvöl sinni í Byrginu svarar Pétur að hann myndi vilja sjá ráðherra stíga fram og segja að ábyrgðin sé ríkisins. Það muni axla ábyrgð og gera eitthvað í málunum strax, og einnig til lengri tíma litið. Bara slík yfirlýsing myndi hjálpa fólkinu, þannig að því liði betur.

„Auk verndar þurfa stúlkurnar á öryggi að halda núna. Sumar þurfa bráðahjálp vegna sinna sjúkdóma. Þær þurfa félagslegan stuðning út af börnum sem þær hafa eignast. Þetta þarf að koma frá einhverjum sem þær treysta, svo sem landlækni eða stjórnvöldum, því þær treysta vitaskuld engum lengur. En þær fá ekkert nema þögn."
Pétur segir ekki nóg að gert með því að hið opinbera kæri Guðmund Jónsson vegna bókhalds.

En þegar sér hafi verið ljóst að ekkert ætti að aðhafast í þágu fólksins þá hafi hann gripið til þess ráðs að skrifa Landlæknisembættinu í byrjun mánaðarins og fært rök fyrir því að um heilbrigðismál væri að ræða. Fólkið hafi farið í Byrgið vegna sjúkdómseinkenna í leit að meðferð. Ábyrgðin sé allt önnur heldur en ef fólkið hefði verið að leita eftir gistingu. Málið heyri undir lög um réttindi sjúklinga.

---

 Gott hjá Pétri enn og aftur. Að það skuli þurfa að pressa svona á ríkið að sjá um sjúklinga...


persónur skipta alltaf máli

það er engin hlutlaus um neitt sem hann lætur frá sér. Við erum öll mörkuð af einhverju. Þetta er einhverskonar hroki að mótmæla myndbirtingunum, eins og þessir dómarar séu e-ð æðri öðru fólki. Það er ekki tilviljun að þarna sitja bara hvítir miðaldra karlar, sú staðreynd litar þeirra dóma.
mbl.is Lögmannafélagið harmar myndbirtingu af hæstaréttardómurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankinn hvetur þig til að taka/auka yfirdrátt(inn)

hvað er með þetta DMK Spron? Í auglýsingunni er par að skoða lúxuskaffivél sem kostar a.m.k. 50.þús og í sama mund er talað um yfirdráttarlán bankans. Finnst fólki eðlilegt að fá sér yfirdrátt fyrir lúxusvörum? Og svo er léttlán ef mér leiðist og vil fara til útlanda þó ég engan veginn hafi efni á því.

úr auglýsingunni:

skraut_hraerivelDMK Yfirdráttarheimild
er á hagstæðum kjörum og getur numið allt að 1.000.000 kr. 

 skraut_flug

DMK Léttlán
veita viðskiptavinum auðvelt aðgengi að hagstæðu láni með léttri greiðslubyrði.(myndin af kaffivélinni er líka þar)

 

Æði ég get keypt mér drasl fyrir allt að milljón krónur Shocking með hjálp bankans. Er fólk að gera þetta til að hald í við Innlit/útlit liðið? 


Somewhere over the rainbow

Ein besta útgáfan af laginu er þessi með Israel Kamakawiwo frá Hawaii sem lést um aldur fram 38 ára árið 1997 vegna offitu. Hann var kallaður The gentle giant og hlaut margar viðurkenningar á sínum ferli. Í lok videosisn er það ösku hans sem er stráð í hafið.

Victor Hugo

(1802 - 1885), skáld og svo margt fleira. Skrifaði Vesalingana og Hringjarinn frá Notre Dame. Hér eru nokkrar tilvitnanir í hann en erfitt var að velja því þetta er allt svo flott hjá honum:
 
 
 
To die is nothing; but it is terrible not to live.  Les Miserables

An invasion of armies can be resisted, but not an idea whose time has come. - 'Histoire d'un crime,' 1852

Work is the law of life, and to reject it as boredom is to submit to it as torment. - Les Miserables

Adversity makes men, and prosperity makes monsters.

Certain thoughts are prayers. There are moments when, whatever be the attitude of the body, the soul is on its knees.

Common sense is in spite of, not as the result of education. 

There is always more misery among the lower classes than there is humanity in the higher. - Les

hugo
Miserables, 1862
 
 
 
Life's greatest happiness is to be convinced we are loved. - Les Miserables, 1862
 
 
 
  
Have courage for the great sorrows of life and patience for the small ones; and when you have laboriously accomplished your daily task, go to sleep in peace. God is awake.
 
 

Emergencies have always been necessary to progress. It was darkness which produced the lamp. It was fog that produced the compass. It was hunger that drove us to exploration. And it took a depression to teach us the real value of a job.

 

The quantity of civilization is measured by the quality of imagination. -  Les Miserables

 

Have no fear of robbers or murderers. They are external dangers, petty dangers. We should fear ourselves. Prejudices are the real robbers; vices the real murders. The great dangers are within us. Why worry about what threatens our heads or purses? Let us think instead of what threatens our souls.  


Spark í rassgatið

á ríkinu, Gott hjá Pétri Hauksyni: 

,,Sagði Pétur, að ríkið ætti að viðurkenna sök í málinu og ekki bíða í 40 ár eins og varðandi upptökuheimilið á Breiðavík. "

,,Í bréfinu lýsir Pétur áhyggjum sínum af ástandinu og segir afleiðingarnar geigvænlegar og varanlegar, geðraskanir og verri fíkn. Konur hafi útskrifað sig úr Byrginu í slæmu ásigkomulagi og lent aftur í neyslu í kjölfarið."

Hvað verður um þessi 10 börn? 


mbl.is Segir barnsfæðingar af völdum kynferðismisnotkunar í Byrginu orðnar tíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stofnanabundin illska

Breiðavík, Byrgið og fleiri.

Stofnanabundin illska er bæði það sem er gert og ekki er gert.  Ég spyr hvað með alla þá starfsmenn sem vissu um þetta, hvað sagði samviska þeirra þeim? Fólk ber ábyrgð á því hjá hverjum það vinnur og er ekki siðferðislega stætt á því að hylma yfir níðingsskap.

"All that is necessary for evil to triumph is for good people to do nothing"

 Sálfræðina í þessu má skilja betur út frá The Stanford Prison Experiment sem var sálfræðitilraun sem venjulegt fólk tók þátt í. Þar lék það annaðhvort fanga eða fangaverði undir eftirliti en allt fór úr böndunum. Sjá heimildarþátt hér. hearnospeakno


Gullkorn barna

var að skoða vefi leikskóla og sá þessi gullkorn:anne_geddes_kal_nursery

Talið barst að einni stúlku í bekknum sem er nett og fíngerð.  Einn spyr:  Er hún dvergur? Annar svarar: Nei, því að þá væri hún með skegg!  

Mamma mín er ófrísk en samt er pabbi ekki heima.  Hann er út á sjó.   Kom í umræðum um hvernig börnin verða til.  

Ég fékk enga kartöflu! Viltu fá mína (spyr einn kennarinn)? Nei, borðaðu hana bara en þú skalt líka spyrja Siggu M því hún er svo gráðug! 

Snorri (4 ára) var eitthvað slæmur í maganum og þegar hann kom af klósettinu sagði hann: „Ég kem örugglega ekki á morgun, ég er nefninlega með yfirgang".

Einn 5 ára segir við kennarann:  "Ég er með varalit"
Hún svarar:  "Já, ertu með varalit?"
"Nei", leiðréttir drengurinn, "ég er ekki með varalalit heldur vara-lit!"
(og átti þá við trélit sem hann var búinn að stinga bak við eyrað - svona til vara!) 

fleiri hér


Varmá

139_Varma_Mosfellsbae Varmá er á náttúruminjaskrá. Sjá ust.is:

Varmá, Mosfellsbæ. (1) Varmá frá upptökum til ósa. (2) Varmá er eitt fárra varmavatna á landinu og hefur mikið vísindalegt gildi.

En samkvæmt lögum þá þarf sveitarfélagið ekki leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda við náttúruminjar, bara við friðlýst svæði:

,,Ef vegna framkvæmda hætta er á röskun náttúruminja á náttúruminjaskrá þá þarf leyfi Umhverfisstofnunar til framkvæmda ef um friðlýst svæði er að ræða. Ef um er að ræða aðrar náttúruminjar á náttúruminjaskrá skal leita umsagnar og tilkynna Umhverfisstofnun um fyrirhugaðar framkvæmdir." af ust.is - Sjá einnig 38.gr laga um náttúruvernd.

Sveitarfélagið metur það sem sagt sjálft hvort um rask sé að ræða. Samkvæmt þessu geta sveitarfélög bara drullað yfir hvað sem þeim sýnist til að geta selt jarðir. Til hvers að skrá þá nokkuð sem náttúruminjar???

Hvað friðlýsingar varðar þá hefur það sýnt sig á síðustu misserum að þær halda ekki, þeim virðist nefnilega hægt að breyta að vild stjórnmálamanna, sbr.virkjanasvæðið f.austan.


Varmársamtökin

var að skrá mig í þau. Heimasíða þeirra.

Bryndís Schram var góð á rás 2 í gær þegar hún ræddi þessi mál. Hlusta hér.

%3F%3Ftimarka%3F%3Fur%20%3F%3Flafosskvos%20300.2 Fyrirhugaður vegur á að fara þarna á milli húsanna.


you go girl!

Tyra Banks um útlitsdýrkun.

Guðspjall dagsins

Matt. 25. 14 -30

27638~Talents-PostersSvo er um himnaríki sem mann, er ætlaði úr landi. Hann kallaði þjóna sína og fól þeim eigur sínar. Einum fékk hann fimm talentur, öðrum tvær og þeim þriðja eina, hverjum eftir hæfni. Síðan fór hann úr landi. Sá sem fékk fimm talentur, fór þegar, ávaxtaði þær og græddi aðrar fimm. Eins gjörði sá er tvær fékk. Hann græddi aðrar tvær. En sá sem fékk eina, fór og gróf fé húsbónda síns í jörð og faldi það.
Löngu síðar kom húsbóndi þessara þjóna og lét þá gjöra skil. Sá með fimm talenturnar gekk þá fram, færði honum aðrar fimm og sagði: Herra, fimm talentur seldir þú mér í hendur, hér hef ég grætt aðrar fimm. Húsbóndi hans sagði við hann: Gott, þú góði og trúi þjónn. Yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns.
Þá gekk fram sá með tvær talenturnar og mælti: Herra, tvær talentur seldir þú mér í hendur, hér hef ég grætt aðrar tvær. Og húsbóndi hans sagði við hann: Gott, þú góði og trúi þjónn, yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig. Gakk inn í fögnuð herra þíns. Loks kom sá er fékk eina talentu, og sagði: Herra, ég vissi, að þú ert maður harður, sem uppsker þar, sem þú sáðir ekki, og safnar þar, sem þú stráðir ekki. Ég var hræddur og fól talentu þína í jörð. Hér hefur þú þitt.
Og húsbóndi hans sagði við hann: Illi og lati þjónn, þú vissir, að ég uppsker þar, sem ég sáði ekki, og safna þar, sem ég stráði ekki. Þú áttir því að leggja fé mitt í banka. Þá hefði ég fengið það með vöxtum, þegar ég kom heim. Takið af honum talentuna, og fáið þeim, sem hefur tíu talenturnar. Því að hverjum sem hefur, mun gefið verða, og hann mun hafa gnægð, en frá þeim, sem eigi hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem hann hefur. Rekið þennan ónýta þjón út í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.

 


Dýravinir

bloggsíða tileinkuð myndum af dýravinum. Sumt er eflaust þvingað en samt sætt.

Pony+_+Cat


Speki

If my hands are fully occupied in holding on to something, I can neither give nor receive.
Dorothee Solle

Our greatest glory is not in never falling, but in getting up every time we do.

Confucious

Results! Why, man, I have gotten a lot of results. I know several thousand things that won't work.

Thomas A. Edison (1847 - 1931)

Ask advice only of your equals.

Danish Proverb

Management is nothing more than motivating other people.

Lee Iacocca (1924 - )

því sem sneitt verður hjá

var að skoða svarta lista Neytendasamtakanna um hækkanir birgja og ætla að punkta hjá mér það sem ég er vön að kaupa en mun ekki kaupa á næstunni:

Prins polo, Nivea, Pickwick te, Nestle nammi, Góu nammi, ostapopp, Ora vörur, Kaffitár kaffi, Kjörís, Lýsi, Myllan, Nói Sírius, Cadbury´s, SS, Vífilfell, Ölgerðin ES.

Woundering þetta gæti orðið flókið. Málið er kannski að prenta listann og stúdera þetta í búðinni næst...


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband