SM - Hausmynd

SM

Gettóið

ég bý á frekar gettó-legum stað um þessar mundir, í svona perma-form íbúða þyrpingu þar sem íbúarnir eru flestir svartir og mexikanar. Fólki finnst þetta frekar síðra hverfi en mér finnst þetta ágætt, er snyrtilegt og ég hef lítið sem ekkert að segja af íbúunum, nema þau á neðri hæðinni virðast horfa ansi mikið á sjónvarpið og það háttstillt, stundum um miðjar nætur. Pinch

Nema hvað í nótt um hálf fimm vakna ég við mikið háreysti og lít útum glugga og þar eru um 10 manns að rífast úta götu...hvað í ósköpunum???!!! Ég var það svefndrukkin að ég sofnaði aftur (með eyrnatappa) en hefði kannski átt að hringja á lögguna. 

Á Star News sem er bæjarblaðið er hægt að fylgjast með glæpunum hér í bæ á þessu korti.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Nú verður þú að fylgjast með á kortinu hvort inn verði sett merki fyrir ónæði á almannafæri við húsið þitt.

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:13

2 Smámynd: Sylvía

já geri það, einhver hlýtur að hafa hringt...þvílíkt pakk

Sylvía , 11.6.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband