SM - Hausmynd

SM

Einhver úthlutaði sjálfum sér hjólinu mínu í gær

027honum/henni hefur kannski fundist það svona flott, allavega var það horfið þegar ég ætlaði að hjóla heim eftir vinnu í gær. Pouty 

Það var beint fyrir utan aðalinngang spítalans þar sem eru myndavélar og mikið af fólki allan daginn og var læst, afturdekkið reyndar bara. Jæja vonandi finnst það eða að þjófnum snúist hugur og skili því, nú eða kemst þá í góðar þarfir. Kostaði ekki mikið, 7.000 kr, en ég reiddi mig á þetta hjól, kaupi kannski annað í dag.

 


mbl.is Úthlutaði sjálfum sér 106 milljónum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Leitt með hjólið. 

Töluvert af því í Amsterdam að eigendur reiðhjóla taki hnakkinn af hjólinu og hafi með sér inn. En það er víst líka til þess að hnakknum verði ekki stolið. Þó finnst mér sniðugast þar sem hægt er að kippa stýrinu af í fljótheitum því þá er svo brösugt fyrir aðra að ráða við hjólið nema bera það.

Ólöf (IP-tala skráð) 13.10.2007 kl. 23:19

2 Smámynd: Sylvía

já hef heyrt það að hér sé öllu stolið af hjólinu sem hægt er að stela. 'Eg keypti mér nýtt betra hjól í dag og betri lás, tvo reyndar þannig að nú er ég meðvitaðri.

Sylvía , 13.10.2007 kl. 23:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband