11.8.2007 | 21:22
í Baltimore
Er nú í Baltimore en flugið er ekki fyrr en á morgun og það annaðkvöld. Ég er því að drepa tímann hér en það er leiðinlegt þegar mann langar bara heim....
Baltimore er falleg niður við höfnina en 1-2 götum ofar er bara mjög óhuggulegt, fátækralegt. Það eru margir túristar hér núna og varla þverfótað fyrir fólki. Mikið um fólk í Red Socks treyjum og nú sé ég það á sjónvarpskjánum að það er að byrja hafnaboltaleikur hér í borg, Boston-Baltimore.
Horfi samt ekki á það þrátt fyrir leiða...
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.