SM - Hausmynd

SM

Föstudagurinn langi

Lúkas 23.32-46

Með honum voru og færðir til lífláts aðrir tveir, sem voru illvirkjar.
Og er þeir komu til þess staðar, sem heitir Hauskúpa, krossfestu þeir hann þar og illvirkjana, annan til hægri handar, hinn til vinstri.
Þá sagði Jesús: Faðir, fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki, hvað þeir gjöra. En þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér.

crucifixionFólkið stóð og horfði á, og höfðingjarnir gjörðu gys að honum og sögðu: Öðrum bjargaði hann, bjargi hann nú sjálfum sér, ef hann er Kristur Guðs, hinn útvaldi.
Eins hæddu hann hermennirnir, komu og báru honum edik
og sögðu: Ef þú ert konungur Gyðinga, þá bjargaðu sjálfum þér.
Yfirskrift var yfir honum: ÞESSI ER KONUNGUR GYÐINGA.

Annar þeirra illvirkja, sem upp voru festir, hæddi hann og sagði: Ert þú ekki Kristur? Bjargaðu sjálfum þér og okkur!
En hinn ávítaði hann og sagði: Hræðist þú ekki einu sinni Guð, og ert þó undir sama dómi? Við erum það með réttu og fáum makleg gjöld fyrir gjörðir okkar, en þessi hefur ekkert illt aðhafst.
Þá sagði hann: Jesús, minnst þú mín, þegar þú kemur í ríki þitt!
Og Jesús sagði við hann: Sannlega segi ég þér: Í dag skaltu vera með mér í Paradís.

Og nú var nær hádegi og myrkur varð um allt land til nóns,
því sólin missti birtu sinnar. En fortjald musterisins rifnaði sundur í miðju.
Þá kallaði Jesús hárri röddu: Faðir, í þínar hendur fel ég anda minn! Og er hann hafði þetta mælt, gaf hann upp andann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Gleðilega páska mín kæra.  Ég sé að þú ert með Django á spilaranum þínum. Hann er uppáhalds.

Jenný Anna Baldursdóttir, 6.4.2007 kl. 13:30

2 Smámynd: SM

takk sömuleiðis

SM, 7.4.2007 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband