22.1.2007 | 09:50
Draumar
ég er ekki vön að segja frá draumum en í nótt dreymdi mig og vin minn sömu manneskjuna; Dorrit Moussaieff. Ekki veit ég afhverju því hún er ekki tengd okkur sérstaklega. Allavega dreymdi mig eitthvað í þá veru að við værum vinkonur og ég byggi hjá þeim hjónum. Vin minn dreymir hins vegar að ég sé orðin hún í útliti og erfitt sé að greina á milli okkar. Hvað ætli þetta þýði ef þá eitthvað?
Viti menn, það er náttúrulega frétt um hana í dag.
- Jafnvel forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur krækt í hina glitrandi yfirstéttarkonu frá London, Dorrit Moussaieff, fasteignadrottningu og skartgripasala stjarnanna á Park Lane."
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.