SM - Hausmynd

SM

Mótið yfirstaðið

og ég komin heim á nýja staðinn(var að flytja) og ákveð að hlusta á rúv.is á netinu og haldiði ekki að ég fái bara þjóðsönginn sem fyrsta lag...Crying  ég sem vann ekkert á mótinu en gerði mitt besta, og fæ þjóðsönginn sem fyrsta lag fyrir tilviljun, eða ekki tilviljun...Smile

Ekki það að ég hafi verið að keppa fyrir landið, þetta var opið mót þar sem maður keppti á móti reyndum sem óreyndum. Ég keppti í bæði Epee og Foil. Það er aukaatriði í hvaða sæti ég lenti, ekki síðasta reyndar, en ég er mjög ánægð með að hafa náð stigi gegn þremur B skylmingarmönnum. B er mjög hátt, en fólk er flokkað í A-E og undir. Ég er alveg lurkum lamin eftir þetta 2 daga mót, með marga marbletti, og mitt fyrsta íþróttamót ever.

Keypti líka fullan búnað og stefni á Norður Karólínu-mót um miðjan apríl. Gaman.

Þeir sem unnu í Epee flokknum voru allt strákar um 16 ára gamlir...Það virðist vera aldurinn sem er að standa sig einna best.

 

Ég og John Rea þjálfarinn, en hann er í 6.sæti í 60 ára og yfir í Sabre á landsvísu.  

   47b8dd11b3127cceb6bbdcd5107600000026100AaNWrNy2buGMA 47b8dd11b3127cceb6bbdccf106c00000026100AaNWrNy2buGMA 47b8dd11b3127cceb6bbdceb104800000026100AaNWrNy2buGMA 47b8dd11b3127cceb6bbdcb3101000000026100AaNWrNy2buGMA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir

Til hamingju með leikgleðina og frammistöðuna!

Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir, 31.3.2008 kl. 08:34

2 Smámynd: Sylvía

takk, takk

Sylvía , 2.4.2008 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband